31október

Lélegur bloggari?!?

Ööö já verð ég að segja.
Ég bloggaði síðast áður en prófin kláruðust, áður en ég fór til Mexíkó, áður en það kom sumar og rigning og þoka og kuldi, ekki sumar og sól, áður en ég kom aftur suður.
Hmm.. núna velti ég því fyrir mér hvað ég eigi að blogga, því ég hef ekki hugmynd um hvað það eigi að vera. Ætti ég að skrifa um það sem er að gerast hjá mér þessa stundina eða? Jáhh ætli það ekki. Hví? jú vegna þess að ég er alltof tóm til að vera að velta einhverju fyrir mér núna. Eða ég tali um það sem ég velti fyrir mér á hverjum degi sem er; "af hverju í andsk.. er ég ekki að lesa. Úff, hvað þýðir þetta orð. Af hverju finnst mér stjórnmálafræði ekki vera skemmtileg. Jæks ég þarf að fara að finna mér heimildir fyrir ritgerðirnar. Jeij ég kann að reikna Kí - kvaðrat og Lambda en til hvers?" En þetta er nú bara svona skólamál. Ég velti alveg örðum hlutum fyrir mér eins og.. "á ég að vinna í jólafríinu. Oohh hvað allt er dýrt. Af hverju er ekki hægt að kaupa úlpur sem kosta 20.000 eða minna og af hverju í fjáranum kosta 66N úlpurnar 53.800 kr!! RÁN!" Svo núna er ég að klára að horfa á Sex and the City seríurnar og ég vil það ekki því þetta eru svo endalaust skemmtilegir þættir og því velti ég því fyrir mér af hverju það er ekki til endalaust af þessum þáttum. Það er bara svo gaman að gleyma sér í þeim. 
HaHa.. nú er komið nóg af rugli. Ef ég myndi segja ykkur allt sem ég væri að velta fyrir mér þá yrðu þið svona nett gjegguð eins og ég. Þess vegna er ég ekkert að deila öllu því sem ég er að velta fyrir mér með ykkur, ykkar vegna. En ef eitthvað brennur á mér þá vill ég nú deila því með ykkur.
Jáhh kannski að renna hratt yfir það sem hefur á dagana drifið; Náði öllum prófunum. Fór til New York og Mexíkó og það var ÆÐI!! langaði svo ekki að fara frá Mexíkó. En á leiðinni týndist taskan mín sem ég mæli ekki með að þið gerið.   Svo kom sumarið og þá vann ég sem flokkstjóri sem var bara mjög gaman og skondið. Vá hvað ég ímyndað mér hvernig ég var þegar ég var unglingur og það er bara gaman að sjá það frá þessu sjónarhorni. Hmm ég fór á LungA og Bræðsluna, Ball hér og þar, Versló heima það var gaman og svo var farið til Viðfjarðar með allri fjölskyldunni, Halldóra systir kom meira að segja. Fór svo í sumarbústað seint í ágúst þar sem að ég hitti ástina í lífi mínu sem er blöðrutrampólín.. haha. Ég kynntist reyndar tveimur æðislegum stelpum, önnur heitir Árný og hún kom með til Mexíkó og hin heitir Ösp og er kærastan hans Atla. Þessar stelpur eru hreint æði.. Frábærar manneskjur ;*;* Ég gerði nú helling meira en hver nennir að lesa það. 
En kannski ég hendi nokkrum myndum inn í ganni: 



Voða gaman að vera myglaður í New York ;)



Á leiðinni í sjóinn, hvíítar strendur ;p


Á sjóræningja siglingu.


Hrafnhildur, Árný og Ég ;*;*


Ég, Ösp og Hrafnhildur á LungA ;*;*


Birta og Ég á Bræðslunni (sry Birta veit þér finnst myndin ljót ;p)



Hahahahaha þessi er bara snilld. Tsss svoo heitar.. (nat) ;p



Ooog svo trampólínið..

Jáhh er þetta ekki bara nóg í bíli.. ;)

_AuÐuR_   sem er að þykjast blogga..

31. október 2008 klukkan 00:31
Auđur Jóna Skúladóttir
3 athugasemdir
07apríl

New York og Mexíkó here I come.. Jeah!

Hæhó..
Langt síðan síðast..
En mig langaði aðalega bara að deila því með ykkur hvað ég er spennt fyrir því að fara út til Mexíkó. Jæks.. ég gæti bara farið að pakka niður núna sko.. hehe. Mér er alltaf að detta í hug hvað ég á að taka með mér og hvort þá það sé fyrir austan. Þannig að núna er ég byrjuð að skrifa lista um það hvað ég á að taka með mér. Eða bara skrifa það sem mér dettur í hug.. Vá ég held ég sé klikk.. hahaha. Eins og ég sé ofur skipulögð, en nei ég er það alls ekki Hlæjandi 

En þetta verður vonandi rosa gaman. Við Hrafnhildur erum búnar að fá bikiníin okkar frá Victorias secret. Þau eru rosa flott. Búin að máta þau í sundi og allt. En ég pantaði nefnilega það líka með að þegar ég fer í bíkiníin þá verð ég eins gellan á myndinni sem var í þeim. Hehehe.. Eenn annars er alveg helling hægt að gera þarna úti og hellingur sem ég ætla að gera. Eins og t.d. fara á ströndina (auðvitað), versla allskonar dót, skoða svona píramýda rústir, fara í hellaferð þar sem maður kafar í, synda með höfrungum, snorkla, fara á köfunarnámskeið, djamma helling og slappa kannski smá af.. og örugglega alveg helling meir.
Eitt sem ég ætla samt að gera þegar ég fer til New York það er að fara inn á skyndibitastað og kaupa stæðsta gosið.. hehe. Það er örugglega alveg 2 lítrar eða eitthvað.. ætla bara að kau
pa það til að kaupa það. Tíhí..! Já svo ætlum við náttúrulega að gera eitthvað í New York en þar sem við erum þar í svo stuttan tíma þá veit ég ekki alveg hvað við getum gert.. en við skoðum og gerum eitthvað merkilegt þar Times Square, Central Park eða eitthvað. Ég ætlaði þá annars bara að koma með nokkrar myndir af Playa del Carmen  og monnta mig, hehe..Glottandi

Hérna er hótelið okkar.. eða báðar lengjurnar og svo þetta í miðjunni.


Ein sundlaugin...


Einhversstaðar á stöndinni..

Xelha Acuatic Activities










Víííjjj.. kafa með fullt af fiskum..

Já þetta er kannski bara ágætt.. Úff það er bara svo gaman að gleyma sér í því að skoða staðinn og allt það sem maður getur gert þarna. Pabbi benti mér einmitt á ótrúlega góða síðu þar sem maður skoðar staðinn út frá augum ferðamanna eða þá er það fólk sem hefur farið þangað sem er að kommenta um staðinn og allt það:
http://www.virtualtourist.com  Voða hentug síða!

Þá er þetta komið gott..

_AuÐuR_ spennta Hlæjandi

07. apríl 2008 klukkan 21:26
Auđur Jóna Skúladóttir
7 athugasemdir
03mars

30. febrúar..

30. febrúar er ekki til en samt fann ég í ísskápnum mínum um daginn kotasælu sem rennur út 30/02. Þegar ég leit á þetta fyrst þá bara jájá.. glæsilegt hún er ekki runnin út. En svo fattaði ég að það er nú einfaldlega ekki til 30. febrúar. Hehe.. Þetta var frekar skondið.

Ég átti afmæli 22. febrúar síðastliðinn og ég varð 21 árs gömul. Jáhh.. núna finn ég að ég fer að verða gömul. Sko áður en maður verðu tvítugur þá er maður rosalega ungur og lítill. En um leið og maður verður 21 árs þá finnur maður að það er ekkert gaman lengur.. Núna er ég búin að ná öllum þessum áföngum. Sko fyrst byrjar maður í skóla, 6 ára. Svo verður maður tveggja tölugamall, 10 ára. Svo fermist maður, 14 ára. Svo má maður fara á 16 ára böll, 16 ára. Svo má maður fara á barinn og 18 ára böll, 18 ára. Síðan má maður fara í ríkið og kaupa á barnum, 20 ára. Svo má kannski koma með auka dæmi; kaupa áfengi í Bandaríkjunum, 21 árs, og svo auðvitað er stundum hærra aldurstakmark inn á suma skemmtistaði, það er alveg 20 - 25 ára. En það er nú ekki mikilvægt. Svo eitt enn, má bjóða mig fram til forseta 35 ára. Veii.. Þannig að núna gerist ekkert skemmilegt meir.. Fýldur Neinei.. ég er nú ekkert þunglynd á því að verða einu ári eldri en í fyrra. Það er bara alveg ágætt. Þetta var bara smá grín var nú ekkert að meina þetta.
Mér finnst alltaf æðislegt að eiga afmæli, ég elska það. Það er sko gaman að eiga einn dag út af fyrir sig.

Ég hélt einmitt afmælisveislu á afmælisdaginn minn. Bauð fólki í kökur og með því.. hehe. Mmm nammi, namm.. Þetta voru rosa góðar kökur þó ég segi sjálf frá. Bakaði allt sjálf nema 2 kökur sem Ásta gerði og svo gerum við Siggi einn rétt saman. Mmm mig langar aftur í kökur núna þegar ég hugsa um það. Ég vil þá bara þakka fyrir mig allar gjafirnar og allt. Þetta var bara æðislegt Hlæjandi

Hmm.. Birta rak mig til að blogga og ég var búin að lofa henni bloggi á fimmtudaginn en ég sveik hana. Obbobobb.. en ég hef bara ekkert að tala um. Það er alveg ágætlega mikið að gera hjá mér í skólanum, er að fara að byrja á tveimur ritgerðum annari má ég skila 4. apríl og hinni á ég að skila 18. apríl. Svo er maður alltaf í ræktinni. Og svo er maður bara alltaf að rækta mig og Sigga.. eða vera með Sigga ef þig fattið ekki. Svo koma bara prófin.

En Birta er einmitt að koma í vinnuferð og heimsókn um helgina og hún mun gista hjá mér.. Veii. Og hún verður alla helgina og meira að segja lengur. Víí.. þá ætlum við að gera eitthvað skemmtilegt saman!! Er það ekki annars Birta?? Gera allt sem hún vill, jahh eða kannski næstum.

Já svo er að koma páskafrí. Við ætlum að keyra heim 14. mars. Jess, hlakka svo til. Aðeins eftir 2 vikur.. Ég ætla að skrópa í 2 daga en ég má það alveg því ég er ekkert búin að skrópa neitt í allan vetur. Þannig að ég á það bara inni. Ég hlakka svo til að fara á bretti heima. Búin að prufa að gera það í Bláfjöllum og það gengur alveg ágætlega þannig að núna er ég alveg tilbúin að fara í stóru lyftuna heima. Ég hef meira segja fari í stæðstu lyftuna hér í Bláfjöllum, en það var að vísu stólalyfta en ég vona samt að ég nái að standa í lyftunni heima!! Úff hvað það verður gott að koma heim.. ahh..!!

Við Siggi vorum í sprautum áðan. Þetta voru alveg 3 stykki. Tvær hægra meginn og 1 vinstra megin. Það var svo ekkert vont nema bara smá óþægilegt hægra megin, seinni sprautan þá, náttúrulega búið að sprauta áður. En ég er nú með smá verk í hægri hendinni, en það hlýtur að fara að lagast.

Nú styttist óðum í Mexíkóferðina. Vá hvað mig hlakkar mikið til.. Jibbíí..!!
Svo eftir það er það bara sumarfrí.. eða vinna.


AuÐuR - sem finnst tíminn líða soldið hratt..!
 
03. mars 2008 klukkan 13:21
Auđur Jóna Skúladóttir
1 athugasemd
09janúar

Leti, leti, endalaus leti!

Gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár allir saman og takk fyrir árið 2007. Árið 2007 var alveg mjög gott ár að mínu mati. Vonandi verður árið 2008 enn betra. 
Núna sit ég í stofunni að horfa á sjónvarpið og er leið yfir því að ég er ekki búin að fá fleiri Friends diska lánaða hjá Halldóru því núna langar mér að horfa á fleiri þætti. Ég er búin að horfa á alltof marga þætti síðustu vikuna, en er samt ekki búin að horfa á þá alla. En þannig að það er eitt af tvennu sem ég er búin að ákveða að gera á morgun, eða þrennu. Ég er nefnilega ennþá í jólafríi og er ennþá heima á Nesk og hef því eiginlega ekkert að gera. Það sem ég er búin að ákveða að gera á morgun er þá að ná í meira Friends, fara út að labba með Kolla og svo fara í sund. Í dag gerði ég ekkert nema að fara út að labba með Kolla og lesa bók sem ég fékk í jólagjöf.. mjög slæmt!
En núna eru jólin búin og voru þau mjög góð og afslappandi. Ég gerði nú ekkert voðalega mikið en ég fór á barinn á 22. des, á ball á annan í jólum og auðvitað áramótaballið. Fannst samt ballið sem var á annan í jólum pínu lélegt, hefðu mátt spila hressari lög og minna af lögum sem að þeir sömdu sjálfir.. hehe. En samt alltaf gaman að hitta allt fólkið. Svo fór ég í jólaboð, borðaði alltof góðan mat, var alltaf við það að springa úr saddi, spilaði partý og co. og auðvitað vann ég í öll skiptin. J Jólunum lauk svo með Þrettándakaffi hérna heima þar sem alveg 64 manns voru í kaffi og með þessu kaffi lauk ofátinu. Núna fer maður að éta venjulegt fæði og minna af kökum og konfekti, sem er voða fínt.
Ég fékk rosalega flottar jólagjafir og er ótrúlega glöð með það. Það sem ég fékk var:
           Bókin Englar Dauðans (er að lesa hana núna og hún er mjög góð og frekar spennandi, mæli með henni), minn fyrsta og mjög flottan kökudisk, æðisleg stigvéli og nákvæmasta veðurstein sem til er (hehe) frá mömmu og pabba.
–     Snjóbretti, bindingar og skó frá Sigga Willa, mömmu hans og pabba og Halldóru. Vá það er geðveikt, nú get ég loksins lært á bretti. Þetta var held ég flottasta gjöfin. Ótrúlega ánægð með hana!! Svo var líka lang skemmtilegast að fá þessa gjöf. Siggi hafði nefnilega komið fyrr um daginn á aðfangadag þegar ég var í sturtu og sett svona vísbendingar um allt þannig að ég þurfti að fylgja þeim til að finna gjöfina mína, fyrsta vísbendingin var bara í litlu boxi. Maður var orðinn mjög spenntur, hehe.. en svo var þetta falið undir rúmi mömmu og pabba. Glottandi sem betur fer var ég ekkert búin að vera að kíkja þarna undir.
         Sjónvarp, JÁ, sjónvarp. 32” LCD flatskjá frá mömmu og pabba Sigga. Ég og Siggi fengum það saman frá þeim. Já þau eru klikkuð.. Finnst ég vera dekruð því ég fékk svo dýrar og flottar gjafir.
        Geðveikan kjól frá systrum mínum.
        Síða peysu frá ömmu minni.
        Allskonar flott sjampó og hárdót frá Ægi, akkurat það sem mig vantaði.
        Flott hálsmen og skál frá Birtu.
        Töff púða og körfu frá Agnesi.  
        Svona ljósapíramýda frá systur ömmu, voða flottur.
        Jólakerti, kertastjaka og yndislegar tátiljur frá Sillu ömmu.
        Konfekt frá Hákoni.
    Bodyskrúbbkrem frá Helenu með ótrúlega góðri lykt.
Hmm... ég held að þetta sé þá komið.. vonandi er ég ekki að gleyma einhverju, þá bara sorry! 
 
Já, ég var síðust til að opna alla mína pakka en venjulega er amma síðust því hún fær svo marga.. heh ég hef þá greinilega fengið ýkt marga eða bara verið svona lengi að opna þá. Nú er bara að koma öllu þessu drasli suður og ætli maður verði ekki að senda eitthvað af því.
Ég er ekki ennþá búin að prófa brettið, skórnir voru of litlir þannig að ég verð að skipta þeim. En vonandi get ég prófa það áður en ég fer en ef ekki þá bara í RVK fyrst það er nú að snjóa þar.
Skólinn byrjar ekki fyrr en 14. jan hjá mér og styttist óðum í það. Það styttist líka óðum í það að ég fari í útskriftarferðina hans Sigga sem er í maí og er sú ferð til Mexikó.. Vúhúú.. Það er geðveikt! Hlakkar klikkað til. Fyrst gistum við 2 nætur í New York og þar ætlum við Hrafnhildur sko að fara í Victoria´s Secret og versla helling.. Vííííí!Gráðugur Þetta verður vonandi ýkt gaman. Jæja nú er þetta komið út í bull.. held ég, allavega komið nóg. Þangað til seinna...

_AuÐuR_  
 
 

Ein af mér og Annettu í lokin á áramótunum Ullandi

09. janúar 2008 klukkan 00:49
Auđur Jóna Skúladóttir
2 athugasemdir
20nóvember

Hmm...

Jaháá.. allsvakalega langt síðan síðast og mér getur ekki verið meira sama.. hehe.
En á þessum tíma hef ég alveg gert heilan helling eins og:

  • fór heim eina helgi úff.. það var svo gott að fara heim og ég get ekki beðið eftir að þessir c.a. 30 dagar líði þangað til að ég komi heim í jólafrí.
  • Þegar ég var heima var mér og Sigga boðið á Showið sem var klikkað skemmtilegt. En sama kvöld fór ég líka á Pallaball sem var ótrúlega gaman á.
  • er að klára tíma hjá hinum klikkaða Kojak í ræktinni.. búhúú.. langar svo að vera lengur en það kostar peninga.
  • fengið gesti í heimsókn að heiman og það alveg góðan slatta sem er auðvitað bara skemmtilegt. Þannig að endilega komið í heimsókn, þið eruð velkomin. Hlæjandi
  • Birta kom í heimsókn og eyddum við góðum dögum í búðum saman. Ég, Agnes og Birta elduðum góðan mat og gerðum eftirrétt.. mmm. Svo ætluðum við í bæinn en fórum ekki.
  • Búin að gera helling af verkefnum og ritgerðum í skólanum. Og er bara búin að fá alveg ágætar einkunnir. Mjög sátt.
  • Héldum nokkur partý og besta kvöldið eða helgin var þegar kjólakvöldið fræga var.. hehe.
  • Birta kom aftur síðustu helgi á vegum Atom og auðvitað fékk ég að hitta hana, buðum henni meira að segja í afmælismatinn hans Sigga.
  • Í afmælismatinn hans Sigga var læri og með því. Nammi, Nammi gott.. og svo köka, marengsterta og ég hef btw aldrei bakað svoleiðis áður en hún var nú bara góð, og svo uppáhaldsrétturinn hans Sigga, aspasréttur. Eftir það fórum við, ég siggi og abraham(hafþór) í keilu og pool. 
  • Siggi Willi átti sko afmæli 18. nóv en líka Elín systir og svo líka Sigurbjörg og því óska ég þeim til hamingju með afmælið, aftur.. hehe.   
  • Ég og mamma hans og pabbi gáfum honum sjónvarpsflakkara í afmælisgjöf. Það var góð hugmynd því ég get notað hann líka og þetta er algjör snilld. Þetta er bara eins og ein stór spóla, hellingur á henni. hehe..
  • Ég hjálpaði Hafþóri að klippa á sér hárið, það var frekar fyndið. Og svo er ég búin að leyfa Sigga að raka líka af sér hárið.. vá hvað ég er góð. Hef sko alltaf bannað honum það.
  • Keyptum okkur borðstofuborð á 12.500 sem átti að kosta 25.000 í IKEA auðvitað. En okkur vantar samt stóla þannig að það er bara notað sem skrifborð, ekki slæmt að hafa það stórt. Svo þegar við vorum að taka það heim þá þurftum við nottla að setja sætin niður aftur í bílnum því það var ekki í kassa og búið að setja það saman. En þar sem að við vorum þrjú, ég siggi og birta, þá vantaði sæti fyrir einn í viðbóð. Þannig að ég ákvað að sitja aftur í til að byrja með og svo myndi ég bara færa mig í skottið og liggja undir plötunni sem að felur hvað er í skottinu. Ái það var ekkert ótrúlega þægilegt en það var fyndið. Þannig að við komust öll þrjú í sömu ferð heim. haha..Hlæjandi skemmtilegur bíltúr að liggja í skottinu og sjá ekkert nema ljósastaura á leiðinni heim. 
  • Á föstudaginn fór ég svo í síðustu vísindaferðina á haustönn og hún var í Skjá1. það var bara mjög gaman. Ég var samt bara róleg og edrú því það er ekkert gaman að fara í tíma hjá Kojak þunnur. Er sko búin að prófa það.. bjakk. Svo fer maður bara í fleiri vísindaferðir eftir áramót.

Hmm.. ég gerði örugglega hellings meira man það bara ekki.
Núna á ég bara eftir að gera eitt verkefni fyrir skólan sem er alveg 10-12 blaðsíður og ég á að skila því 30. nóv sem er einnig síðasti kennsludagurinn hjá mér. Síðan eftir það fer ég að lesa fyrir prófin sem á eftir að verða algjört skemmtiefni. Svo 19. des kem ég heim og ég get ekki beðið!!
En eitt sem að ég hef tekið eftir er að mér finnst enginn vera búinn að skreyta hér í RVK nema þá Kringlan og Smáralind og ég er bara mjög fegin. Mig minnir að þetta hafi verið miklu meira í fyrra. Það á nefnilega ekki að byrja að skreyta fyrr en í fyrsta lagi þegar aðventa byrjar eða bara þegar 1. des er.
En jájájá.. langaði að setja inn einhverjar myndir í bloggið en veit ekki hvaða myndir ég á að setja. Þannig að kannski set ég þær inn bara seinna. hehe.. Er svo þreytt núna. Sofnaði ekki fyrr en kl hálf fimm í nótt og vaknaði  um kl 10. Ætla að fara að laga sólarhringinn því maður er alltaf farinn að fara svo seint að sofa.. ekki sniðugt.
En látum þetta gott heita.. eða eitthvað.

_AuÐuR_

20. nóvember 2007 klukkan 00:06
Auđur Jóna Skúladóttir
2 athugasemdir
16október

Ţađ er svo ćđislegt ađ vera á kafi í verkefnum! :D :(

Hmm.. alveg komin tími á að fá útrás og segja ykkur frá því sem ég hef verið að gera.
Jámm, ég er búin að vera frekar upptekin síðustu vikuna og því hef ég ekkert bloggað. Sko fyrstu helgina í okt. komu krakkarnir hingað úr VA og sömu helgi fór ég í afmæli þar sem maður hitti alla norðfirðingana og var það mjög skemmtilegt. Ég og Siggi fengum að fara á leikritið Leg með þeim og var þetta alveg ágætis leikrit. Kannski svolítið sýrt en samt ekki. Mjög sérstakt enda eftir hann Hugleik Dagson, það segir sig eiginlega alveg sjálft. Sama kvöld fórum við út að borða með Helenu og Ólafi og ég ætlaði að hitta þau seinna í bænum en einhvern veginn fórum við svo seint að ég hætti bara við að fara, enda þau þá farin heim.. Gerum það þá bara seinna í staðinn.
Þessa viku átti ég að vera að læra fyrir þetta yndislega próf í kúrsinum Fjölbreytileiki og félagsleg mismunun. En ég lærði nú ekki það mikið, þannig að í gær og í dag var ég að læra eins og brjálæðingur út af því að prófið var akkurat í dag!! Shitt hvað ég var stressuð!!! Úff ég vildi sko bara drífa þetta af þegar ég var á leiðinni í skólann. En annars veit ég ekki alveg hvernig mér gekk í þessu prófi. Hmm.. sko gat alveg skrifað eitthvað, eða ég svaraði öllu sko, en ég bullaði líka svo mikið við sum svörin. Getur líka verið að ég hafi ruglað hugtökunum saman og eitthvað vesen. En ég er svo glöð að þetta er búið að ég er búin að vera í sæluvímu í dag.. ahh. En til að fagna því að vera búin fórum við siggi í bíó áðan á Good Luck Chuck. Hún var mjög fín, fyndin en bara svolítið amerísk í endan.
Svo á morgun byrjar vinnan aftur. Það er sko alveg klikkað að gera hjá mér næstu 2 vikurnar. Úff.. Sko skila einstaklings ritgerð 1. nóv, skila annari ritgerð með Sjöfn 30. okt og skila hópverkefni 29. okt!! Ohh.. vá allt á sama tíma næstum því. En ég ætla að reyna að klára þessar ritgerðir sem fyrst og svo á laugardaginn ætlum við að byrja á og klára hópverkefnið. Ég vil sko klára þessar ritgerðir fyrir 26. okt vegna þess að mig langar svo að fara heim þá helgi. Vil líka heldur ekki vera að klára þetta á síðustu stundu. En já mig langar klikkað heim þessa helgi því þá er eitthvað að gerast heima, er það ekki annars? Páll Óskar?? gaman að koma þá heim og skemmta sér með öllum! Hlæjandi Þannig að ég ætla að vera ótrúlega dugleg stelpa.

En þessi helgi var ótrúlega skemmtileg. Á föstudagskvöldinu fórum við, ég, siggi, halldóra og hafþór, á ölver að hitta hina félagsfræðinemana. Komum að vísu seint en það var allt í lagi, en við ætluðum aðalega að hitta Sjöfn og Dóru og Finn. Þær voru svo hugrakkar að syngja fyrir framan alla en ég lét sko ekki plata mig. En auðvitað stóðu þær sig eins og hetjur. Enda góðir söngfuglar. Eftir það ætluðum við á októberfest en okkur var bannað að fara inn því þetta var að verða búið og eitthvað rugl. Þannig í staðinn fórum við á Hressó en þá gat Halldóra ekki farið inn þannig að Siggi fór heim með henni og ég og Dóra og Sjöfn skemmtum okkur þá bara í staðinn saman. Vá það var ótrúlega gaman, drukkið mikið, dansað mikið og svo borðað alltof mikið af stjörnum! Úff Dóra varstu ekki pakksödd af öllu þessu áti?? Ullandi hehe.. Takk fyrir kvöldið stelpur.
Þessa sömu helgi átti Hr. Kisi að fara á kisusýningu og þess vegna kom Halldóra hingað, til að hjálpa mér. Við vissum sko ekki baun, alls ekki baun hvað við áttum að gera þarna. En svo spurðum við helling af fólki og þetta gekk upp. Þó ég skilji sumt ekki ennþá! Heh.. en þessi keppni var leiðinlega skemmtileg. Hún einkenndist af mikilli bið og mikilli þreytu. Enda mættum við þangað kl 8:30 og ég kom heim kl 4!! Ekki sniðugt. En Hr. Kisi fékk mjög góða dóma en vann ekki neitt enda var hann yngstur af sinni tegund. Þannig að næst mun hann örugglega vinna eitthvað! Ooo ég er svoo stolt af honum. hehe.. Þessar keppnar og allt þetta stúss í kringum þetta er alveg klikkað snobb og við pössuðum engann veginn inn í þetta "samfélag". Þetta var frekar fyndið að vera þarna. Fólkið það þekkti sko Hr. Kisi út af því að það þekkir alla ræktendurna og hefur séð myndir og ég veit ekki hvað og hvað! Gú gú.. Væri ekki betra að vita eitthvað annað mikilvægara!? Neinei þetta er gott áhugamál. En þó að maður hafi alveg verið að klikkast því þetta var svo niðurdrepandi að bíða eftir þessu þá er ég samt alveg tilí að gera þetta aftur. Þannig að ég mun fara á næstu sýningu með köttinn ef ég má, þá ætlum við sko að vinna!!! Hehe..
Er hann ekki flottur..
Núna er ég búin að fá prófatöfluna mína og ég byrja 11. des í prófum og er búin 19. des. Frekar seint En það bætir það upp að ég eigi að byrja aftur 14. jan í skólanum. Þannig að ég fæ mjög langt jólafrí þrátt fyrir allt. Vúhúú..

Já.. þá held ég sé búin að segja frá öllu. Held ég bloggi ekki fyrr en 1. nóv sökum annan. Nema ég taki mér smá pásu frá lærdómi.
 
_AuÐuR_ sem að er önnum kafin..

16. október 2007 klukkan 23:21
Auđur Jóna Skúladóttir
6 athugasemdir
08október

Hátíđardagur um allan heim!!

Já mikið rétt. Það er sko hátíðardagur sem allir í heiminum fagna í dag og er gild og góð ástæða fyrir því. Ástæðan er sú að mjög mikilvæg manneskja fæddist í dag og því er verið að fagna fæðingu hennar. Þessi manneskja er alveg frábær í alla staði, hún er æðisleg, fyndin, hefur miklar skoðanir á öllu og er alveg snarklikkuð! Ég get talað við hana endalaust um allt og ekkert, sem skiptir engu máli. Og saman erum við mjög góð blanda. Hún er ein af þeim bestu vinkonum sem hægt er að eiga og mundi ég ekki getað hugsað mér að eiga einhverja aðra í staðinn. 
Hún Birta mín á afmæli í dag.  Hún er loksins orðin 20 ára. Eftir langa bið, en loksins kom að því, vúhúúú.. HlæjandiSvalur 

Birta innilega til hamingju með afmælið. Eigðu góðan dag og láttu alla stjana við þig.. Koss  Verst að geta ekki haldið veislu en við gerum það bara í staðinn þegar þú kemur suður.. veii get ekki beðið!!

Nokkrar myndir af afmælisbarninu í tilefni dagsins:


 Birta og ég voða fínar og sætar.


Ég snerti þig þú snertir mig AAhhaaaaaa!!
 

Sjáið hvað hún er mikill engill Saklaus

Hehe.. enn og aftur til hamingju með afmælið!


_AuÐuR_

08. október 2007 klukkan 15:44
Auđur Jóna Skúladóttir
3 athugasemdir
01október

Mánudagur í hámarki!

Úff.. ég var svo rosalega þreytt í morgun og í dag þangað til seinni partinn. Ég fór í tvo tíma og ég var ekki að meika þá. Ég náði bara engann veiginn sambandi við kennarann. Já.. þetta var sko ekta mánudagur.
Vúhúú..
Ég var samt líka rosa glöð í dag. Ég er neflilega búin með mína yndislegu ritgerð fyrir stjórnmálafræði, SEM ég skilaði í dag. Vá hvað ég kann ekkert að gera ritgerðir, sérstaklega fyrir háskóla. Þess vegna fór ég til minnar ástkæru systur og lét hana lesa hana yfir og hún lagaði allt bullið mitt. En að vera búin með þessa ritgerð þýðir bara að það taka fleiri ritgerðir og verkefni og próf við. Já maður fattar alltaf að maður hefur ekkert endilega tíma fyrir það.
Sko núna um helgina er fullt af fólki að koma sem maður náttúrulega verður að hitta. Svo helgina eftir er ég að fara með Hr. Kisa á kisusýningu. Akkurat þriðjudaginn eftir þá helgi þarf ég að fara í próf. Úff.. svo um leið á ég að vera að gera ritgerð með henni Sjöfn. Svona er minn háskóli. Heh.. ég ætti nú ekkert að vera að kvarta mikið þar sem að þetta er örugglega langt um minna en hjá öðrum.

Hmm.. mér finnst ég vera ennþá með ritstíflu.. Þá skal ég bara segja ykkur frá því að Hafþór keypti sér hund um daginn. Hann heitir Hommi og er 98 G. Og hann er orðinn 2 ára, öö eða mánaða, eða daga eða eikkað ég veit ekki. Jább.. æj ég hefði kannski átt að segja frá því að hann er tölvudýr! hehe.. Þegar hann var að kaupa það var leikarinn Þorsteinn Guðmundsson á eftir honum í röðinni. Svo þegar hann sá dýrið þá bara varð hann að fá sér svona líka.
Og hann fór og náði í það.. HaHa. Snilld.
 Jæja, svo er ég búin að ákveða að fara í Baðhúsið. En já ég byrjaði í dag. Jebb.. núna er ég hætt þessu sleni.. segir maður það ekki annars? En við systurnar ætlum að fara saman alltaf og ýta á hvora aðra að drulla sér í ræktina. Það er farið að sjást verulega á manni að maður sé ekkert búinn að hreyfa sig í meira en mánuð! Brr.. mér hryllti við tilhugsuninni. Oj.. Ég held líka að ég hafi aldrei drukkið eins mikið kók á ævi minni og núna!!! Sjæse. Þetta er ekkert venjulegt. Að búa með strákunum og þeirra þörf fyrir kók er slæmt! Ég drekst ofan í svaðið með þeim. Núna segi ég líka að nammi sé verkfæri Djöfulsins!! Þannig að með því að vera dugleg að fara í ræktina ætla ég líka að vera dugleg og byrja á því að minnka kók drykkju og svo endanlega láta það verða þannig að ég drekki þá bara kók um helgar.  Jámm.. vonandi verð ég sterk með þessa freystingu stöðugt fyrir framan mig. Svo vill Hafþór alltaf kaupa nammi, þannig að það er alltaf til nammi hér! Slæmt, það er verið að refsa mér, ég er veikgeðja sko!!
HeHe.. 
Núna sér maður að það sé kominn vetur. Rosa kalt, vindur, rigning, allt orðið gult og rautt, engin laufblöð og ógeð. Mér finnst þetta ekkert gaman. Ég sé sko sumarið í hyllingum og það er bara rétt svo búið. Var að horfa á Köld slóð um daginn og það var vetur í myndinni og þá var svona snjófok og ég og Hafþór bæði í einu: ohh er þetta að fara að byrja aftur.. Búhú.. ég mun sakna sumarsins svooo miikið! Þá fer ég bara að telja niður í sumarið. Hehe..


Hmm.. voðalega er þetta eitthvað lélegt hjá mér.. Alveg glatað blogg! En ég ætla þá bara halda áfram að gera mánaðardagatal fyrir kvöldmatinn okkar. Nota sko þarna hvaderimatinn.is og það virkar sko vel. Núna er kominn október og við vorum ekki búin að gera svona dagatal. Og því vissum við bara ekkert hvað við áttum að éta.. Við vorum alveg eyðilögð. hehe..
Jámm.. vonandi geri ég betur næst! Hef þá kannski eitthvað að blogga um..!

_AuÐuR_
01. október 2007 klukkan 21:03
Auđur Jóna Skúladóttir
7 athugasemdir
18september

Stelpan sem starir á hafiđ..

Ohh.. á ég að byrja eins og maður gerir næstum alltaf þegar maður hefur ekki bloggað lengi og segja.. Er ekki kominn tími á blogg?? eða Jæja.. eða eitthvað álíka. Æj það er ömurlegt en þar sem að hugmyndaflug manns einkennist aðeins af lærdómi verður það bara að duga.

Já þessar ca. tvær vikur í háskólanum hafa bara verið ágætar. Maður er samt farinn að finna fyrir því að þurfa að fara að lesa heilu bókastaflanna og gera nokkrar ritgerðir. Úff.. hryllir við hugmyndinni að fara að gera ritgerðir aftur.. brr! Að fara að gera þær aftur er hinsvegar aðeins flóknara núna en í framhaldsskóla. Því núna má ég ekkert nota hvaða heimildir sem er eins og maður slapp alltaf við þá. Svei segi ég bara.
--En annað sem fylgir því að vera í háskóla en Djamm og fyllerí. Það stendur sko í bæklingnum. Jájá.. sko fyrstu helgina var eitthvað háskóladjamm á fimmtudeginum og fórum við, ég, Sjöfn og Dóra, á það. Svo daginn eftir var eitthvað nýnemadjamm í félfr.deildinni og við kíktum samt bara aðeins á það. Svooo núna síðustu helgi þá var sko fyrsta vísindaferðin hjá deildinni minni og fórum við í Hrafnistu. Það var nú aldeilis gaman. Þegar við komum þá sko gat konan ekki byrjað kynninguna fyrr en að allir væru komnir með glas í hönd. Haha.. það var fyndið. En ferðin byrjaði kl 6 og þá byrjaði fylleríið og svo var haldið á Gauk á stöng og svo Hressó og vorum við þar allt kvöldið. Það var alveg ýkt gaman!! Takk fyrir frábært kvöld Sjöfn ;) (Ef ég kynni að setja inn myndir í bloggið þá myndi ég gera það, þannig einhver má alveg kenna mér það ;) Hey Agnes kenndi mér það :D )
Akkurat þessa sömu helgi fóru Siggi og Hafþór að smala kjöti í búið. Þeir fóru að smala hjá frænda hans Hafþórs. Þanngi að ég var aaallein þessa helgi en það var í lagi vegna þess að Ásta var líka ein og ég gisti því bara hjá henni.. Veii stelpu helgi :D 
--Ömm svo ákvað ég líka að gera eins og allir aðrir og fá mér Mæspeis... eða Myspace. Jább linkurinn er hér til hliðar.. :) 

--Ehh.. man ekkert fleira í augnablikinu en ég virðist alltaf vera að blogga þegar við erum að horfa á video. Þannig að ég ætti að vera að horfa núna.. Best að gera það Hlæjandi  

AuÐuR.. sem er hrædd við myndina! og ætti að vera að læra...

Ég gleymdi alveg að segja ykkur frá honum Ljóna mínum! Hann er ótrúlega sætur kisi sem að er heima á Neskaupstað. Hann er eimmitt sonur hennar Emmu Lísu sem að Anna Þóra á og Halldóra. Og mig langar svo að fá hann til mín. Ég segjist nefnilega eiga hann. Ég á hann samt eiginlega ekki. Ég bý í blokk og má maður nokkuð eiga kött í blokk?? En ég gæti kannski fengið að eiga hann en ég veit ekki alveg hvort ég eigi að eiga hann. Mig langar það svo.. hann er líka svo flottur og mikið krútt. Er með mynd af honum á mæspeisinu. Úff.. greyið hann saknar mig líka. Æj æj æj.. hvað skal gera?? Á ég að fá hann og reyna að smjaðra í húsverðinum og fá að hafa hann hér.. eða á ég bara að gleyma þessu. Þetta er nottla mikil skuldbinding að eiga svona barn! Ó nei.. ??? er alveg ráðvilt...?? 

18. september 2007 klukkan 22:10
Auđur Jóna Skúladóttir
8 athugasemdir
02september

Hey.. Ţú ert klár. Nei! Ég er meri!!

Kvöldmaturinn byrjaði vel en varð okkur svo að vonbrigðum. Eftir kvöldmatinn þurfti ég að hugga hann Hafþór. Við sem vorum orðin svo spennt að borða maísinn. En svo var hann bara vondur.. oohh hvað það var ömurlegt. Hvernig getur maís verið vondur. En greyið Hafþór var ekki að sætta sig við það hann er of matsár.
Já svona er nú okkar yndislega heimilislíf Brosandi

En annars er ég að drullast til að bulla eitthvað bara út af því að Birta sagði mér að gera það. Allt fyrir þig Birta mín. Skólinn er að byrja á morgun og þá fer ég í einn tíma. Stundataflan mín er öll götótt og ég fer 3 daga í einn tíma á dag og svo hina tvo fer ég í 2 tíma. Já, maður er ekki alveg vanur þessu. En ég fór eimmitt á nýnemafund á föstudaginn og þar hitti ég nokkrar stelpur sem að voru með mér í útskriftarhópnum í Ármúla. Mjög næs að þekkja einhvern þarna. Þessa viku sem ég er búin að vera hér erum við búin að vera að mála. Svo nú er allt orðið ótrúlega fínt. Sko allt loftið var málað, eða á ganginum, baðinu og í stofunni. En við vorum sko aðalega að mála stofuna. Svo hún er orðin svaka kósí núna. Allir veggir hvítir nema einn og hann er leirgrár og hann er með hvítan ramma utan um sig. Öss hvað þetta er flott hjá okkur maður er bara montinnHlæjandi  Já annars erum við ekki búin að gera mikið hérna. Maður finnur alveg hvað það er öðruvísi að búa hér í Rvk heldur en á Neskaupstað. Hér er einhvernveginn ekkert að gera. Nema þá tekur það svo langann tíma að fara að framkvæma það og svo kostar það þá alltaf gríðarlegan pening að auki. Það er bara allt best heima. Glottandi

Við fórum samt á ljósanótt í gær bara til að sjá flugeldasýninguna. Hún var nokkuð flott sko. Eftir hana nenntum við ekki að vera þar lengur en ákváðum samt að fara heim til Ólafs, hann býr þar sem að herinn bjó, og sem betur fer. Því þegar við vorum að fara þangað þá sáum við að þessi þvílíka bílaröð var strax búin að myndast. Við stoppuðum frekar lengi hjá Ólafi og Helenu en ákváðum svo að fara aftur til Keflavíkur til að fá okkur að éta. Þá var röð alveg innan úr bænum og fyrir ofan hann og alveg til Hafnarfjarðar. Vá.. þetta var algjör klikkun. En svo þruftum við að bíða í röð eftir matnum og þegar við vorum búin að fá hann og skutla þeim heim fórum við líka í röðina en hún var orðin svo lítil að við vorum bara 50 mín á leiðinni heim held ég, eða klukkutíma. Úff..

Já svo keyptum við litla frystikistu en svo þegar Siggi var búinn að bera hana alla leið upp þessar 60 tröppur þá komust við að því að hún var öll beygluð. Ohh.. þá þruftum við að hringja en ekkert var hægt að gera fyrr en á mánudaginn. Þannig að það er ekki enn búið að koma henni fyrir og allt er út um allt.

Svo 4. sept núna á þriðjudaginn á hann Hafþór, mamma okkar, afmæli hann er að verða 19 ára strákurinn. Þannig að það verður afmælisveisla hér næstu helgi. Vúhú..

Þá er eitthvað búið að bullast út úr mér á meðan ég er að horfa á einverja bull mynd sem við leiðgum á Vodd???inu.
Já ég mæli líka sérstaklega með myndinni Disturbia sem er verið að sýna í bíói núna. Fórum á hana í gær og hún er geðveikt góð. Maður verður klikkað spenntur!!

Já.. verð víst að halda áfram að horfa á myndina.. Ullandi

En hey hvernig finnst ykkur myndin af okkur Kvarta hér að ofan. Ansi lík finnst ykkur ekki???


_AuÐuR_ háskólanemi..
02. september 2007 klukkan 22:40
Auđur Jóna Skúladóttir
6 athugasemdir

Ađalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Um mig

  • Nafn: Auđur Jóna Skúladóttir
  • Netfang: aupa22@hotmail.com
  • Stađur: Neskaupstađur
  • Atvinna: Er atvinnulaus.. Var ađ vinna sem flokkstjóri í sumar, sem var bara nett gaman ;D
  • Hjúskaparstađa: Er međ Sigga Willa
  • Um mig: Ég er 21 árs gömul yngismey. Ég er frá Firđinum fagra eđa Norđfirđi (er stoltur sveitalubbi). Ég bý núna í Reykjavík, flutti hingađ haustiđ 2006. Ég er búin međ framhaldsskólann og er núna í Háskóla Íslands. Ţar er ég ađ lćra félagsfrćđ og er á 2 árii.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit